Holmatro hefur kynnt í sumar og að undanförnu margar nýjungar. Við biðjumst velvirðingar að hafa ekki verið dugleg að koma fréttum frá okkur varandi þessar nýjunar en hér koma þær.
Nýverið afgreiddum við frá okkur fjórðu Tohatsu VE1500 dæluna til slökkviliðs á Suðurlandi. Í gegnum tíðina höfum við selt yfir 25 lausar brunadælur frá Tohatsu til slökkviliða og fyrirtækja.
Undanfarið höfum við tekið inn á lager nýjar gerðir af reykskynjurum og hitaskynjurum frá nokkrum birgjum. Við munum svo sjá hver eftirspurnin verður, hverjum við höldum í vöruúrvali okkar.
Frá og með 3. júlí til og með 15. ágúst verður að vana opið hjá okkur frá 08:00 til 16:00 alla virka daga.
Hefðbundinn opnunartími, 08:15 til 17:00, hefst svo aftur 15. ágúst.