Nú er hin árlega Eldvarnavika að hefjast. Við höfum reynt að undirbúa okkur fyrir þessa viku en gera má ráð fyrir aukinni sölu
á ýmsum eldvarnabúnaði í kjölfarið.
Í dag afhentum við það sem eftir átti að afhenda af hlífðarfatnaði til útgerðarfyrirtækisins Þorbjarnar hf.
í Grindavík. Þorbjörn hf. er fyrsta fyrirtækið sem kaupir um boð í skip sín Weenas Pbi Kelvar
hlífðarfatnað en það er sá hlífðarfatnaður sem m.a. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins notar.
Frá Rapid Deployment getum við boðið takmarkað magn af bakbrettum af gerðinni RED 716 PRO-LIITE. Þessi bretti eru rauð að
lit og hægt að fá með og án pinna fyrir ólar.
Við erum í Bielsko Biala að skoða slökkvibifreiðar og m.a. þá sem er væntanleg til landsins næst fyrir Brunavarnir á Héraði og
Flugmálastjórn fyrir Egilsstaðaflugvöll.
Kennd var tjöldun í síðustu viku á Slökkvistöðinni í Hafnarfirði og komu leiðbeinendur frá Trelleborg í
Svíþjóð en það voru þeir Thomas Gilbert og Christer Fritze.
Í næstu viku eða nánar tiltekið á miðviku og fimmtudag verður kennsla í tjöldun. Kennd verður meðferð og tjöldun Trelleborgar
tjalda sem SHS og Slökkvilið Akureyrar hafa fengið til sín.
Þjónustulið Egenes Brannteknikk AS er duglegt við að senda frá sér fréttabréf varðandi fyrirbyggjandi viðhald og notkun ýmis
búnaðar og tækja í slökkvibifreiðum.